31 Júlí 2020 08:53

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Skjólvangi í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skjólvang í vesturátt, á móts við Skjólvang 6. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 34 ökutæki þessa akstursleið og því ók  um fimmtungur ökumanna, eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Skjólvangi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.