30 Júní 2020 12:07

Brot 14 ökumanna voru mynduð á Skjólvangi í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skjólvang í austurátt, við Vesturvang. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 59 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Skjólvangi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.