10 Mars 2023 10:34

Brot 48 ökumanna voru mynduð á Skothúsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skothúsveg í austurátt, að Bjarkargötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 112 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökamanna, eða 43%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 59.

Vöktun lögreglunnar á Skothúsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.