11 Apríl 2024 11:42

Brot 29 ökumanna voru mynduð á Skyggnisbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skyggnisbraut í norðurátt, að Úlfarsfellsvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 64 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 45%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar á Skyggnisbraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.