30 September 2022 14:47

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Skyggnisbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skyggnisbraut í norðurátt, að Úlfarsfellsvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 55 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar á Skyggnisbraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.