27 Júní 2014 12:00

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Sléttahrauni í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sléttahraun í norðurátt, á móts við Sléttahraun 18. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 32 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Sléttahrauni er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.