30 Október 2014 12:00

Brot 48 ökumanna voru mynduð á Smárahvammsvegi í Kópavogi á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Smárahvammsveg í norðurátt, við Hæðarsmára. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 168 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sex óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 77. 

Vöktun lögreglunnar á Smárahvammsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.