1 Nóvember 2010 12:00

Brot 36 ökumanna voru mynduð á Smárahvammsvegi í Kópavogi á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Smárahvammsveg í norðurátt, við Hlíðasmára. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 244 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Þrír óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 80.

Vöktun lögreglunnar á Smárahvammsvegi var tilkomin vegna ábendinga um hraðakstur.