4 Mars 2013 12:00

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Snorrabraut í Reykjavík á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Snorrabraut í suðurátt, við Mánagötu. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 291 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.

Vöktun lögreglunnar á Snorrabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.