14 Janúar 2022 10:10

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Snorrabraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Snorrabraut í norðurátt, á móts við Mánagötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 192 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 65.

Vöktun lögreglunnar á Snorrabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að snjókoma og krapaþekja var á meðan hraðamælingunni stóð.