17 Mars 2022 13:43

Brot 27 ökumanna voru mynduð á Snorrabraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Snorrabraut í norðurátt, á móts við Mánagötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 241 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.

Vöktun lögreglunnar á Snorrabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað, blautt og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.