18 Október 2022 15:02

Brot 38 ökumanna voru mynduð á Snorrabraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Snorrabraut í norðurátt, á móts við Mánagötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 287 ökutæki þessa akstursleið og því allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 67.

Vöktun lögreglunnar á Snorrabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.