29 Mars 2023 15:38

Brot 22 ökumanna voru mynduð á Snorrabraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Snorrabraut í norðurátt, á móts við Mánagötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 273 ökutæki þessa akstursleið og því allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 65.

Vöktun lögreglunnar á Snorrabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.