19 Febrúar 2013 12:00

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Snorrabraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Snorrabraut í norðurátt, við Mánagötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 316 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáeinir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.

Vöktun lögreglunnar á Snorrabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.