8 Ágúst 2019 08:45

Brot 48 ökumanna voru mynduð á Sogavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sogaveg í suðurátt, á móts við Austurgerði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 108 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 44%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar á Sogavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.