25 Ágúst 2021 11:45

Brot 53 ökumanna voru mynduð á Sogavegi í Reykjavík á mánudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sogaveg í austurátt, á móts við Sogagerði 220. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 101 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 52%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar á Sogavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.