2 Desember 2021 15:14

Brot 44 ökumanna voru mynduð á Sogavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sogaveg í austurátt, á móts við Sogaveg 220. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 94 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum meirihluti ökumanna, eða 47%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar á Sogavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.