20 Nóvember 2009 12:00

Brot 55 ökumanna voru mynduð á Sogavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sogaveg í vesturátt, á móts við Garðsenda. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 82 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 67%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tíu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 56.

Eftirlit lögreglunnar á Sogavegi var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum við götuna en þeir hafa kvartað undan hraðakstri. Þess má jafnframt geta að um miðjan október var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað en þá var fylgst með ökutækjum sem var ekið í austurátt. Þá óku 68% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða sem er nánast sama niðurstaða og í gær.