14 Júlí 2022 20:13

Brot 57 ökumanna voru mynduð á Sogavegi í Reykjavík á mánudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sogaveg í austurátt, á móts við Sogaveg 222. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 87 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 66%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 57.

Vöktun lögreglunnar á Sogavegi er liður í umferðareftirliti hennar  á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.