17 Janúar 2023 13:28

Brot 24 ökumanna voru mynduð á Sogavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sogaveg í austurátt, á móts við Sogaveg 222. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 56 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 42%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Sogavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að léttskýjað, blautt og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.