1 Júní 2023 11:03

Brot 14 ökumanna voru mynduð á Sogavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sogaveg í vesturátt, við Sogaveg 123. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 67 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fimmtungur ökumanna, eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.

Vöktun lögreglunnar á Sogavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.