3 Febrúar 2010 12:00

Brot 62 ökumanna voru mynduð á Sogavegi í Reykjavík gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sogaveg í vesturátt, á móts við Garðsenda. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 83 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 75%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sautján óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 56.

Eftirlit lögreglunnar á Sogavegi var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum við götuna en þeir hafa kvartað undan hraðakstri. Þess má jafnframt geta að í bæði nóvember og október var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað en þá var brotahlutfallið sömuleiðis mjög hátt, eða tæplega 70%.