15 Apríl 2015 16:27

Brot 39 ökumanna voru mynduð á Sogavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sogaveg í vesturátt, á móts við Sogaveg 220. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 63 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 62%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Níu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 60.

Vöktun lögreglunnar á Sogavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.