16 Febrúar 2016 13:00

Brot 18 ökumanna voru mynduð á Sogavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sogaveg í austurátt, á móts við Sogaveg 220. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 49 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 37%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar á Sogavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.