23 Ágúst 2016 17:22

Brot 43 ökumanna voru mynduð á Sogavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sogaveg í vesturátt, á móts við Sogaveg 220. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 75 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 57%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Ellefu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 62.

Vöktun lögreglunnar á Sogavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.