15 Október 2009 12:00

Brot 54 ökumanna voru mynduð á Sogavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sogaveg í austurátt, á móts við Garðsenda. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 80 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 68%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Átta óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 55. 

Eftirlit lögreglunnar á Sogavegi var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum í hverfinu sem hafa kvartað undan hraðakstri á þessum stað.