29 Nóvember 2012 12:00

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Starhaga í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Starhaga í austurátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 74 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Starhaga er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.