2 Maí 2018 10:40

Brot 53 ökumanna voru mynduð á Stórhöfða í Reykjavík á mánudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stórhöfða í austurátt, á móts við Stórhöfða 33. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 225 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 80.

Vöktun lögreglunnar á Stórhöfða er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.