15 Ágúst 2018 11:09

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Stórhöfða í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stórhöfða í austurátt, á móts við Stórhöfða 33. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 168 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70.

Vöktun lögreglunnar á Stórhöfða er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.