24 Maí 2019 10:45

Brot 35 ökumanna voru mynduð á Stórhöfða í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stórhöfða í austurátt, á móts við Stórhöfða 27. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 184 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 82.

Vöktun lögreglunnar á Stórhöfða er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.