21 Júní 2010 12:00

Brot 47 ökumanna voru mynduð á Stórhöfða í Reykjavík sl. mánudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stórhöfða í austurátt, að Viðarhöfða. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 167 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í þriðjungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Þrír óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 77.

Eftirlit lögreglunnar á Stórhöfða var tilkomið vegna ábendinga um hraðakstur á þessum stað.