24 Mars 2010 12:00

Brot 43 ökumanna voru mynduð á Strandgötu í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Strandgötu í norðurátt, nærri Helluhrauni eða við Slippinn. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 462 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71.

Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Strandgötu var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Strandgötu en þá óku hlutfallslega jafn margir, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan einnig sú sama, eða 9%.