22 Febrúar 2013 12:00

Brot 26 ökumanna voru mynduð á Strandgötu í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Strandgötu í norðurátt, á móts við Hamarsbraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 530 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 82.

Vöktun lögreglunnar á Strandgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.