18 Nóvember 2013 12:00

Brot 32 ökumanna voru mynduð á Strandgötu í Hafnarfirði á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Strandgötu í norðurátt, rétt hjá Fjörukránni. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 469 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 61 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Strandgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.