13 Mars 2023 14:45

Brot 12 ökumanna voru mynduð á Strandgötu í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Strandgötu í norðurátt, á móts við Hellubraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 436 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 68.

Vöktun lögreglunnar á Strandgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.