2 Apríl 2008 12:00

Brot 42 ökumanna voru mynduð á Strandgötu í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Strandgötu í norðurátt, nærri Hellubraut. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 468 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var liðlega 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 75.

Eftirlit lögreglunnar á Strandgötu er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Á Strandgötu var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.