9 Nóvember 2009 12:00

Brot 121 ökumanns var myndað á Strandvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Strandveg í norðurátt, gegnt Gufunesi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 188 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en helmingur ökumanna, eða 64%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 70 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fjórtán óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 90.