10 Maí 2012 12:00

Brot 113 ökumanna voru mynduð á Strandvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Strandveg í suðurátt, gegnt Gufunesi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 304 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 37%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tuttugu og fimm óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 84. 

Vöktun lögreglunnar á Strandvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.