8 Maí 2015 17:14

Brot 100 ökumanna voru mynduð á Strandvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Strandveg í suðurátt, á móts við Gufunes. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 265 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tuttugu og fjórir óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 90.

Vöktun lögreglunnar á Strandvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.