13 Maí 2016 14:44

Brot 81 ökumanns var myndað á Strandvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Strandveg í suðurátt, á móts við Gufunes. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 214 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 83.

Vöktun lögreglunnar á Strandvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.