4 Maí 2009 12:00

Hundrað fjörutíu og einn var staðinn hraðakstri á Strandvegi í Reykjavík á miðvikudag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar á miðvikudag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði var brot 141 ökumanns myndað á Strandvegi en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, gegnt Gufunesi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 277 ökutæki þessa akstursleið og því óku 51% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fjörutíu og einn ók á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 87.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Strandvegi og þá óku 52% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var meiri umferð um götuna (337 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var 66 km/klst.