30 Mars 2010 12:00

Brot 35 ökumanna voru mynduð á Suðurbraut í Hafnarfirði á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurbraut í norðurátt, nærri Lindarhvammi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 142 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sex óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 78.

Mælingarnar á fimmtudag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Suðurbraut var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Suðurbraut en þá óku hlutfallslega ívið færri, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan hinsvegar 13%.