25 Mars 2010 12:00

Brot 5 ökumanna voru mynduð á Suðurbraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurbraut í suðurátt, við Hvaleyrarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 38 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 61 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 65.

Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Suðurbraut var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Suðurbraut en þá óku hlutfallslega mun fleiri, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan hinsvegar 17%.