4 Október 2013 12:00

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Suðurbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurbraut í austurátt, að Þúfubarði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 82 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum fjórðungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Suðurbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.