22 Ágúst 2014 12:00

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Suðurbraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurbraut í austurátt, á móts við Suðurbraut 18. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 183 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Suðurbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.