2 Nóvember 2015 15:46

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Suðurbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurbraut í norðurátt, á móts við Suðurbraut 18. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 176 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Suðurbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.