30 September 2021 16:30

Brot 5 ökumanna voru mynduð á Suðurbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurbraut í norðurátt, á móts við Suðurbraut 18. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 142 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Suðurbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.