13 Desember 2012 12:00

Brot 59 ökumanna voru mynduð á Suðurgötu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurgötu í suðurátt, að Kirkjugarðsstíg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 179 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sjö óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 60. Á fyrrnefndum hluta Suðurgötu er einstefna, en þarna er jafnframt sérmerkt reiðhjólarein. Á áðurnefndum klukkutíma fóru jafnframt níu reiðhjól um götuna, en enginn hinna níu ökumanna þeirra nýtti sér reiðhjólareinina sem þarna er.

Vöktun lögreglunnar á Suðurgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.