25 Júní 2014 12:00

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Suðurgötu í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurgötu í suðurátt, við Sturlugötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 141 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70.

Vöktun lögreglunnar á Suðurgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.