20 Ágúst 2014 12:00

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Suðurgötu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurgötu í norðurátt, að Sturlugötu. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 144 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Suðurgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.